Klukkan

Auglýsing

tHe biG tHirTy

11. maí 2007 klukkan 22:51
Við erum á leið í brúðkaup til Danmerkur í júní...það hlýtur að vera gamanKoss
Ragnhildur
Engin athugasemd

alltaf...

11. maí 2007 klukkan 10:10
...verður maður fyrir jafn miklum vonbrigðum þegar við komumst ekki áfram í Eurovision. Voru það ekki bara austur evrópulönd sem komust áfram...alveg fáránlegt og þeir hljóta að breyta þessu einhvern tímann. Vinsældarkostning og ekkert annaðÖskrandi
Ragnhildur
Engin athugasemd

09. maí 2007 klukkan 14:39
Það er greinilega engin með skoðun á TopGear...ég mæli bara með að þið prófið að horfa á einn þáttGlottandi

Ég er byrjuð að undirbúa sumarvinnuna og það er bara gaman. Ótrúlegt samt hvað þetta tekur allt tíma og það er alltaf eitthvað sem þarf að athuga og tékka á. Enda gerum við þetta svo ótrúlega vel á AkranesiHlæjandi

Það er allt í skoðun með utanlandsferð og ég vona bara að það verði eitthvað af því. Við höfum ekki farið út í bráðum tvö ár svo það er alveg kominn tími á okkurKoss

Mikilvægir dagar framundan...ég þarf að ákveða hvað ég ætla að kjósa. Er svona með hugann við einn flokk en geri það sennilega ekki upp við mig fyrr en á laugardaginn. Síðan er undankeppni Eurovision á morgun og ég vona bara að Eiríkur massi þetta svo við Íslendingar getum skemmt okkur almennilega yfir keppninni á laugardaginnUllandi
Ragnhildur
Engin athugasemd

TopGear...

01. maí 2007 klukkan 22:47
...eru alveg massa þættir. Ég hef ekki neinn einasta áhuga á bílum og það segir mér ekkert að það sé V8 vél í bílnum og ég rétt svona átta mig á hestöflunum. En þessir menn gera þetta bara svo hrikalega skemmtilegt og það er eiginlega sjaldan sem ég hlæ jafn mikið að einhverju í sjónvarpinu eins og TopGear.

Við vorum reyndar búin að fylgjast með þessum þáttum í Sviss en þeir eru ekki síðri hérna á ÍslandiSvalur
Ragnhildur
Engin athugasemd

27. apríl 2007 klukkan 10:32
...allt að gerastSvalur
Ragnhildur
2 athugasemdir

The Holiday

23. apríl 2007 klukkan 10:26
The Holiday er algjört æði, must að sjá hana þið sem eigið það eftir. Ég lifði mig svo inní myndina og fannst alveg glatað þegar hún var búin...langaði að horfa á meira og meira. Er ekki viss um að Biggi hafi gleypt jafn vel við henni en hann horfði alla vega á alla myndina.
Ragnhildur
6 athugasemdir

jæja...

18. apríl 2007 klukkan 23:41
...ég hef það greinilega ekki í mér að blogga. kannski er ég svona gamaldags að þetta er ekki komið inn í system-ið mitt...ég veit ekki. Hins vegar les ég blogg hjá öðrum og hef oft gaman af...en það er nú önnur saga.

Ég setti inn myndir af tertudisk sem ég var að búa til...bara svona ef ykkur langar til að sjá. Hver veit nema ég geri meira af þessu og öðru líku Koss

Sumardagurinn fyrsti á morgun...ég á von á gestum bæði í hádegismat og kvöldmat, ekkert nema gaman að því.

Ég óska ykkur gleðilegs sumars og vona að þið skemmtið ykkur vel á sumardaginn fyrsta við frostmarkið Glottandi
Ragnhildur
2 athugasemdir

ummmhhh...

23. mars 2007 klukkan 11:10
...ég elska amerískar pönnukökur með sírópi.

Það getur verið rosalegt að vera í fæðingarorlofi. Maður gefur sér ekki tíma til að hreyfa sig almennilega, alla vega ekki til að fara einn eitthvert en hefur svo aftur á móti góðan tíma í að baka og elda. Þetta minnir mig á tímann þegar við fluttum til Sviss, þá var sko alltaf verið að prófa eitthvað nýtt í bakstri og á matseðli enda sást það á manni eftir veturinn Skömmustulegur En þetta verður allt betra í sumar þegar ég fer að vinna og vera í aktívri vinnu Hlæjandi

Þannig var það nú bara.
Ragnhildur
3 athugasemdir

22. mars 2007 klukkan 10:56
Ég get bara ekki að því gert en að kvarta undan þessu veðri. Þetta er alltaf svona, það kemur fínt veður í nokkra daga og fólk fer í svona vorfílíng en svo allt í einu fyllist allt af snjó og svo kemur slidda og svo kemur rigning og svo kemur rok og svo skín sólin aðeins inn á milli. Þetta upplifir maður á fáum öðrum stöðum en á Íslandi. Ég vona að það verði gott veður í sumar því þá verð ég að vinna svo mikið úti.

Ragnhildur
Engin athugasemd

10. mars 2007 klukkan 21:55
ef þið vitið um einhvern sem vill leigja íbúð í Reykjavík í sumar þá endilega látið mig vita :-)
Ragnhildur
1 athugasemd